Það sem fólk segir um act herba
Furunálaveig - Dropar Frábært náttúrumeðal við mörgum kvillum og orkugjafi. Hjálpaði mér að ná mér útúr langvinnum berkjubólgum..frábær vara.
Þessi furunál er snilld ❤️ ég var bitin á Tenerife, ég úðaði Furunálaveig á bitin, örfáum mínútum seinna, allt hjaðnað og farið, frábært ;) Furunálaveig sprey notað útvortis og til bætiefna inntöku.
Ég er rosa spennt að prófa þetta.
Ég er búin að nota hana í nokkra mánuði og fann fljótt fyrir léttari öndun, var búin að vera með kvef lengi. Húðin varð mýkri. Ég hef verið með psoriasis frá 18 ára aldri og þetta er fyrsti veturinn sem ég er nánast laus við exemið í hársverðunum.
Furuveigin Ég var heppin að hlusta á kynningu um Furuveig hjá Katrínu daginn áður en ég fór til Nepal, þar sem ég var í námi í mánuð með hópi fólks. Flesta daga var einhver veikur af magapest eða kvefpest. Heppna ég fékk þó hvorki hor í nös né hóstastunu . . . og meltingin var í fullkomnu lagi allan tímann. Ég gef mér fimm púst einu sinni á dag - og hef verið stálslegin frá fyrsta pústi. Hef tröllatrú á Furuveig til heilsubótar - og ekki er verra að ég fíla lyktina og bragðið í tætlur.
Ég mæli algjörlega með þessum dropum fyrir þá sem eiga það til að yfirgefa sjálfa sig í hópum eða á fjölmennum stöðum. Þá mæli ég með þeim fyrir þá sem hafa fengið langvinnt kvef eins, sem ég var að kljást við. ... ég finn svo sterkt hvað þessir dropar eru magnaðir og máttur náttúrunnar kemur sterkt í gegnum þá