Um Act Herba

Ég heiti Katrín Erla — móðir, amma, langamma, systir og vinkona.

Um 9 ára aldur fékk ég þá gjöf að sá fræi í jörð og rækta gulrætur og grænkál. Mér þótti það kraftaverk að sjá lítið fræ vaxa upp úr mold og vatni — og varð hugfangin af uppskerunni. Síðan þá hef ég haft brennandi áhuga á ræktun lífræns grænmetis og því sem vex og dafnar í okkar góða landi.

Menntun og reynsla

Svæðameðferð og Heilsunudd frá árinu 1986. Tók námið NLP Master markþjálfun/lífsþjálfun í jákvæðri sálfræði 2002. Áratuga reynsla sem heilsufræðingur með áherslu á næringu sem stoð fyrir líkamlega og andlega heilsu, leiddi mig að þessu verkefni.

Frá plöntum til jurta-apóteks.

Bækur, veraldarvefurinn og námskeið í grasafræði og blöndun plantna leiddu mig áfram í rannsóknum. Úr varð að ég þróaði eigið apótek frá jurtafræðinni — byggt á alþýðulækningum í gegnum aldirnar eingöngu úr íslenskum jurtum jafnvel þeim sem vaxa í bakgarðinum.

Þannig fann ég hið magnaða íslenska furutré, sem varð þessi sterki kjarni. Náttúrulegt lífrænt ómengað beint úr plönturíkinu — vítamín, steinefni, prótein og andoxun — fyrir líkaman til að viðhalda orku og heilsu. Fjallafura (Pinus Mugo) frá afurðum hennar getur verið sú hjálp sem þú þarfnast að heila þig eða að vernda þína eigin heilsu.

Áfram veginn

Reynsla, rannsóknir og saga annarra þjóða geyma mikinn fróðleik. Þangað leita ég áfram — og uppgötva íslenska flóru enn betur, til árangurs og sjálfbærni.


Kærleikskveðja,
Katrín Erla