Furufrjókorn – gjöf náttúrunnar frá furuskóginum

Furufrjókorn, lífskraftur og ákvörðunin um að hlúa að sjálfum sér

Furufrjókorn hafa um aldir verið metin fyrir næringargildi sitt og tengsl við lífskraft og vellíðan. Í þessari grein er fjallað um hormónajafnvægi, lengja líf fyrir heilbrigða öldrun og hvernig litlar daglegar ákvarðanir geta stutt við betri heilsu til framtíðar.
Flest viljum við njóta góðrar heilsu, orku og lífsgæða alla ævi. Til þess þarf ekki alltaf stórar breytingar heldur meðvitaðar ákvarðanir á hverjum degi. Ein þeirra er að velja sjálfan sig í fyrsta sæti og hlúa að líkama sínum áður en ójafnvægi eða vanlíðan nær að festa rætur.
Þegar komið er yfir þrítugt fara fyrstu breytingar öldrunar að birtast hjá mörgum. Hormónabúskapur líkamans tekur smám saman breytingum og þættir eins og streita, svefnleysi og langvarandi álag geta haft áhrif á líðan, orku og almennt jafnvægi. 
Hormón eru mun meira en kynhormón. Þau hafa áhrif á svefn, skap, efnaskipti, lífsorku og vellíðan. Þess vegna er mikilvægt að huga að heilbrigðum lífsstíl, næringarríkri fæðu og góðri sjálfsumhyggju.
Furufrjókorn hafa verið notuð í aldir sem hluti í hefðbundinni næringu víða um heim. Þau innihalda fjölbreytt næringarefni, eru rík af amínósýrum, vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum. Þau eru náttúrulegt Phyto-androgens-testósterón sem viðheldur jafnvægi kynhórmóna. Þess vegna mögulegs hlutverks þeirra að styðja við heilbrigðan lífsstíl. Við mælum með að athuga testerónið sitt fyrir og eftir notkun.  
Hjá ActHerba lítum við á furufrjókorn sem hluta af heildrænni nálgun að styðja líkamann með hreinni upptöku næringarefna sem frásogast í munni.  Engin töfralausn er til, en litlar og reglulegar ákvarðanir til að hlúa að eigin heilsu geta haft mikil áhrif til lengri tíma litið.
Að lokum snýst þetta um jafnvægi. Að geisla af góðri heilsu er að hlusta á líkamann, virða þarfir hans og gefa sér þann tíma og næringu hvern dag.

Veldu heilsuna í dag

Heilsan byggist sjaldnast á einni stórri ákvörðun heldur mörgum litlum sem teknar eru dag eftir dag. Hver góður svefntími, hver næringarrík máltíð og hver stund sem þú gefur þér til að hlúa að sjálfum þér skiptir máli.
Ef þú finnur að líkami þinn kallar eftir meiri orku, betra jafnvægi eða einfaldlega meiri umhyggju, þá er dagurinn í dag góður staður til að byrja. Ekki bíða eftir rétta tímanum, því hann er núna.
Furufrjókorn geta verið hluti af þeirri vegferð fyrir þá sem vilja styðja við lífsstíl sem byggir á náttúrulegri næringu og meðvitaðri umhyggju fyrir eigin heilsu.
Hjá ActHerba trúum við því að raunveruleg vellíðan byrji innan frá. Þegar við veljum okkur sjálf í fyrsta sæti, nærum líkama okkar af virðingu og hlustum á þarfir hans, skapast grunnur að sterkari heilsu og meiri lífsgæðum til framtíðar.
Gefðu sjálfum þér það sem enginn annar getur gefið þér - daglega umhyggju, betra jafnvægi og næringu sem styður þig á þinni eigin heilsuvegferð og hamingju.
„Furufrjókorn innihalda fjölbreytt næringarefni og lífvirk efni sem hafa vakið athygli rannsakenda.“
Heimild: Liang, S.B. o.fl. (2020). The Potential Effects and Use of Chinese Herbal Medicine Pine Pollen (Pinus pollen): A Bibliometric Analysis of Pharmacological and Clinical Studies. World Journal of Traditional Chinese Medicine. Rannsóknin tók saman 239 vísindagreinar um furufrjókorn og notkun þeirra. [pubmed.ncb...lm.nih.gov]
Back to blog